Skilmálar

Almennt
Piccolo Barnavörur áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar eins fljótt og unnt er eftir pöntun. Sé vara ekki til á lager mun berast tilkynning um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða breytingu sem gera þarf á pöntun. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Piccolo Barnavörur ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Piccolo Barnavörum til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Að skipta og skila 
Kaupandi hefur 14 daga skilarétt að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun/skiptimiði fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin og ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd og þarf kaupandi að standa straum af kostnaði ef koma þarf vörunni til Piccolo Barnavara.

Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu eða lagersölu.


Gölluð vara
Sé vara gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður hvetjum við kaupanda til þess að hafa samband við okkur svo hægt sé að leysa málið í sameiningu.

Verð, skattar og gjöld.
Vinsamlegast athugið að verð getur breyst án fyrirvara. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. 
Sendingakostnaður er samkvæmt verðskrá Póstsins og reiknast sá kostnaður í sendingarmáta þegar gengið er frá greiðslu. Hægt er að velja um það hvort varan/vörurnar séu sóttar í Póstbox, sóttar á Pósthús eða keyrðar heim að dyrum.

Greiðsla
Hægt er að greiða með debet/kredit kortum í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay og einnig er hægt að notast við netgíró og aur í gegnum greiðslusíðu þeirra.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 

Lög og varnarþing  
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur. 

Upplýsingar
101 Vogar ehf. kt. 670917-1180, VSK nr. 144988 heldur utan um verslun á Hafnargötu 54 í Reykjanesbæ þ.e. Piccolo barnavörur og þessa tilteknu vefverslun, www.piccoloborn.is